Jæja lesendur góðir, nú er aðeins vika í ferðalagið mikla svo það er ekki laust við að spennan sé byrjuð að skríða upp bakið á mér. Mér finnst eins og það hafi verið í síðustu viku þegar við Áslaug byrjuðum að tala um að fara í heimsreisu saman. Þetta var í miðri prófmyglu hjá henni, síðustu jólaprófin í lyfjafræðinni, og ég var ekki einu sinni byrjuð í cand.psych náminu sem ég er hins vegar búin með í dag. En nú er komið að því! Rúmum tveimur árum síðar og tveimur yndislegum ferðafélögum betur ætlum við að skoða heiminn.
Svo hægt sé að láta svona ferð verða að veruleika þarf maður að vinna dálitla undirbúningsvinnu og það höfum við verið að gera síðustu mánuði. Þessi vinna var einhvernvegin svona: spara pening, fara í bólusetningar, velja lönd til að heimsækja, sleppa öðrum löndum og þar með byrja að plana næstu heimsreisu, spara pening, kaupa allskonar drasl og dóterí, spara pening, sækja um visa, fara í fleiri bólusetningar, spara penings osfrv….
Annars ætlum við að reyna að vera afskaplega dugleg og henda inn færslum um það sem á daga okkar drífur og ég vona að þið munið sem flest fylgjast með þessu ævintýri okkar.
Linkurinn hér að neðan sendir ykkur á ó svo ekki amature-legt youtube myndband sem leiðir ykkur í gegnum flakkið í máli og myndum.
Flott video félagi!