Nepal

Nú erum við nýkomin til Laos frá Víetnam en ætlum að byrja á að segja ykkur frá Nepal.

Við höfðum aðeins 5 daga í Nepal og var dagskráin því mjög þétt. Við komum okkur fyrir á hostelinu í sameiginlegu 6 manna herbergi á 6. hæð. Nóttin kostaði 225 ISK. Í móttökunni var einskonar félagsmiðstöð þar sem við kynntumst fólki  hvaðanæva að úr heiminum, almennileg bakpokastemning. Við vorum dregin inn á ferðaskrifstofu þar sem við bókuðum fjallaflug og „létta“ 2ja daga göngu gegnum Shivapuri þjóðgarðinn. Eldsnemma morguninn eftir vorum við keyrð aftur út á flugvöllinn og ferjuð upp í litla flugvél sem flaug meðfram Himalaya fjallgarðinum og að Mount Everest.  Við fengum að taka myndir út um flugstjórnarklefann og í lok ferðarinnar var okkur afhent prófskírteini sem staðfesti að við hefðum séð Mount Everest. Útsýnið var vægast sagt stórfenglegt.

 

Kathmandu iðaði af lífi í góða veðrinu en hitinn var um 25°C. Við skoðuðum Durbar Square ásamt bandarískum ný-vini okkar, en Durbar Square er torg í hjarta borgarinnar sem er fullt af hofum og minnisvörðum. Inn á torgið kostaði 450 ISK fyrir útlendinga en frítt fyrir innfædda. Þar sem slíkt er ólöglegt á Íslandi tókum við það ekki í mál og tókst að svindla okkur óséð inn á torgið. Stuttu síðar voru stelpurnar nappaðar í miðri ljónastyttumyndatöku af vopnuðum hermanni sem krafði þær um aðgöngumiða. Þær þurftu því að fara að næsta sölubási og borga sig inn með skottið á milli lappanna. Á torginu fór fram einhvers konar hindúa hátíð þar fólk safnaðist saman til að fylgjast með skrúðgöngu. Endaatriði skrúðgöngunnar var vagn með Kumari sem er stúlkubarn sem þeir trúa að sé hindúgyðjan Durga endurholguð. Þegar krakkinn birtist gjörsamlega trylltist allt og áttum við fullt í fangi með að halda jafnvæginu fyrir æstum miðaldra nepölskum konum sem vildu berja barnið augum.



Snemma um morgunn vorum við sótt á hostelið og var formlega lagt af stað í trekking ferðina. Fjórum Íslendingum og tveimur Nepölum var troðið í Suzuki af minnstu gerð. Ekki bætti úr skák að vegirnir minntu á Kjöl að vori til. Eftir að gangan hófst komumst við fljótlega að því að ekki var um að ræða þægilega ellismellagöngu eins og við héldum heldur alvöru fjallgöngu með öllu tilheyrandi. Hinsvegar skemmtum við okkur vel og vorum stöðugt að sjá eitthvað athyglisvert. Reglulega mættum við innfæddum sem hlupu framhjá okkur í flip-flop skóm hlaðnir varningi sem hékk á höfðinu á þeim. Við gengum gegnum fjallaþorp með eldhressum hönum, hænum, geitum og fólki sem bruggaði vín og vann önnur dagleg störf.  Útsýnið yfir Kathmandu dalinn var mjög fallegt og gerði erfiðið algjörlega þess virði. Eftir 5 klukkustunda göngu vorum við komin á hæsta punkt Shivapuri þjóðgarðsins í um 2200 metrum yfir sjávarmáli. Þar komum við inn á mjög vafasamt gistiheimli sem innihélt töluvert fjölbreyttara dýralíf en við kærðum okkur um. Ekki bætti úr skák að loftið var mjög rakt og kalt. Þoka lág allt í kring sem gerði þetta heldur kuldalegt.


Við kenndum leiðsögumanninum okkar Ólsen-Ólsen og hann kenndi okkur spilagaldra í staðinn. Þegar til stóð að fara í háttinn kom í ljós að bæði herbergin voru ljóslaus. Þegar hótelstjórinn hafði tekið einu ljósaperuna sem var á ganginum og flutt hana inn í herbergi Maríu og Steinars kom í ljós stærsta könguló í heimi fyrir ofan rúmgaflinn, þar sem þau höfðu tekið lúr fyrr um daginn. Uppi varð fótur og fit og eftir myndatöku var henni fargað á fagmannlegan hátt með tveimur strákústum af hótelstarfsmanni sem virtist ekki vera að þessu í fyrsta skipti. Eftir grandskoðun herbergjanna með vasaljósum var hótelstarfsmaðurinn líka fenginn til að sjá um risa-margfætlu og könguló í hinu herberginu. Þótti honum þetta full mikill tepruskapur og sagði að þessi væri ekki einu sinni hættuleg eins og hin hefði verið. Við sváfum frekar laust þessa nótt.

Morguninn eftir mátti sjá Himalaya fjallgarðinn í sólarupprásinni eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Gangan til baka sem átti að vera þægilegt rölt reyndist vera 8 tíma langferð. Þar sem rignt hafði um nóttina höfðu myndast pollar víða á veginum sem þýddi að sársvangar blóðsugurnar biðu eftir okkur. Stelpurnar sluppu en þegar á leið á ferðina tóku þær eftir stærðarinnar blóðbletti á hvíta bolnum hans Steinars. Undir honum lág feit og alsæl blóðsuga sem gæddi sér á sjaldgæfu AB- blóði í hinum mestu makindum. Meðan stelpurnar stífnuðu upp sýndi leiðsögumaðurinn fumlaus viðbrögð, fjarlægði blóðsuguna og sýndi henni í tvo heimana með strigaskónum sínum.


Undir lok ferðarinnar tók að hellirigna. Á endanum komumst við inn í minnsta strætisvagn sem við höfum séð þar sem hundblautir Íslendingarnir vöktu eflaust ekki mikla lukku. Stöðugt var fleira og fleira fólki var troðið inn í mini-rútuna og siluðumst við áfram inn í Kathmandu þar sem rigningin hafði breytt götunum í beljandi fljót.

Gegnblaut og uppgefin komum við aftur á hostelið. Okkur til mikillar gleði hafði þeim láðst að taka frá herbergi fyrir okkur. Eftir einhvers konar reddingu var okkur troðið saman í lítið 2ja manna herbergi með aukadýnu á 5. hæð. Þegar Eva var nýbúin í sturtu og farin að þurrka sér við opinn gluggann byrjaði fólki úti á götu að æpa og góla. Þar sem hún furðaði sig á tepruskap fólksins bönkuðu ferðafélagarnir á baðherbergishurðina og sögðu henni að koma út því það væri jarðskjálfti. Þá tók Eva loksins eftir því að gólfið hríðskalf og byggingin sveiflaðist til og frá. Aldrei áður höfðum við fundið jafn langan jarðskjálfta og líktist tilfinningin því að standa á vaggandi báti. Stuttu síðar bankaði hótelstarfsmaður og bað okkur um að koma niður í hvelli. Viðbrögðin vorum misjöfn en María mætti fyrst niður berfætt og verulega stressuð og fylgdi Áslaug fast á eftir. Stuttu síðar komu Eva og Steinar, fullklædd og með fartölvuna ef biðin yrði löng. Um var að ræða stærsta jarðskjálfta Nepal í 78 ár sem átti upptök sín í Norður-Indlandi skammt frá landamærum Nepals. Hann var 6,9 á Richter og olli töluverðu manntjóni og skemmdum.

Síðasta daginn okkur í Nepal skoðuðum við Kathmandu með finnsku vinum okkar.


Við sáum nepalska útför, við Vishnumati ána, sem var mjög svipuð þeirri sem við sáum í Varanasi.

Eftir allt of margar tröppur komumst við upp í Swoyambhu Nath Stupa, öðru nafni Monkey Temple. Það er buddhahof á hæð með fallegu útsýni yfir Kathmandu og er fullt af apaköttum og buddhamunkum. Einn apinn varp full spenntur yfir Áslaugu og kexinu hennar og gerði sig líklegan til að stökkva á hana. Með snörum viðbrögðum tókst henni að koma sér undan og grýta kexinu í apann, sem át kexið af bestu lyst.

Okkur þótti mjög gaman í Nepal og hefðum gjarnan viljað vera lengur. Ferskt fjallaloftið og rólegt yfirbragðið var kærkomið eftir lætin í Indlandi.

Á þessum tímapunkti voru hryðjuverkamenn búnir að sprengja bæði í Delhi og Agra á Indlandi stuttu eftir að við vorum á hvorum stað. Jarðskálftinn reið yfir þegar við vorum nýkomin úr fjallgöngunni og viku eftir að við yfirgáfum Nepal komumst við að því að samskonar útsýnisflugvél og við fórum í hafði farist í aðflugi, full ferðamönnum. Svo virðist sem við séum einu skrefi á undan hættunum og er okkur satt best að segja farið að þykja þetta verulega skuggalegt. Þrátt fyrir að vissulega sé eingöngu um tilviljanir að ræða verður fróðlegt að sjá hvort eitthvað fleira gerist.

Kveðja frá Laos, meira síðar!

Indland – Mathura, Agra og Varanasi

Mathura var staðurinn sem við vissum lítið sem ekkert um þegar við lögðum í hann. Við héldum að við værum að fara á lítinn friðsælan stað en raunveruleikinn var annar. Þegar við stigum út af lestarstöðinni tóku trilljón tuktuk bílstjórar á móti okkur, umkringdu okkur og reyndu að ýta okkur inn í bílinn sinn. Við skiptum okkur í tvö lið og keyrði tukka Áslaugar og Maríu fyrst af stað. Umferðin var kolrugluð að vanda en á þessu stigi vorum við hætt að kippa okkur upp við slíkt. Þegar seinni tukkan kom á hótelið með Evu og Steinar innanborðs voru Áslaug og María hvergi sjáanlegar. Korteri síðar og tveimur tjékk-innum síðar voru þær enn hvergi sjáanlegar og voru hótelstarfsmennirnir farnir að efast um að við værum í raun fjögur. Þegar þær mættu loks á svæðið kom í ljós að þær höfðu lagt upp í svaðilför sem endaði á lögreglustöð borgarinnar. Unglingsbílstjórinn þeirra hafði ekki hugmynd um, frekar en þær, hvert hann ætti að fara og tók handahófskenndar beygjur í von um að ramba á hótelið og allar tilraunir til samskipta á ensku voru frekar gagnslausar því enginn í borginni virtist skilja stakt orð í því tungumáli. Þrátt fyrir að þeim hafi ekki staðið á sama meðan á þessu stóð varð þetta að ágætis ævintýri og sáu þær meðal annars apa á flótta undan bálreiðum bæjarbúum með stolið knippi af bönunum. Apinn slapp með skrekkinn og klifraði upp á næsta húsþak og gæddi sér á fengnum.

 

Við skoðuðum merkilegasta hof bæjarinns sem Indverjar trúa að sé fæðingarstaður Krishna sem er einn af aðalguðunum í hindúatrúnni. Þegar við vorum að skoða hofið dúkkaði gömul indversk kona upp við hlið okkar og gaf okkur nammi og gekk á eftir Steinari, sagði honum að hann væri hennar Krishna og gaf honum hvíta perlufesti. Það sem okkur þótti þó merkilegast við þetta hof voru apakettirnir sem klifruðu í trjánum og létu sig gossa í lítið vatn.
Við skelltum okkur svo í siglingu á Yamuna ánni sem rennur í gegnum borgina en það var fyrsta rólega stundin sem við höfðum átt í langan tíma. Við fengum frábæran leiðsögumann sem sagði okkur frá því sem fyrir augu bar en gallinn var að við skildum ekki stakt orð af því sem hann sagði. Það gerði þó ekkert til því rólegheitin voru meira en nóg fyrir okkur. Eftir siglinguna var Steinar blessaður í „hreina“ vatinu af einum innfæddum, gegn þóknun, og við fengum öll rauðan punkt á ennið.

Það sem eftir lifði dagsins gengum við um borgina og sáum margt athyglisvert. Merkilegast þótti okkur þó að í heilan sólahring höfðum við ekki séð einn einasta ferðamann, fyrir utan okkur fjögur.

Að vanda var netsambandið sem lofað var á hótelinu í besta falli mjög takmarkað sem leiddi til þess að við sátum í einni hrúgu í móttökunni, eina staðnum sem netsamband náðist, að reyna að finna okkur gistingu í Agra. Þar kynntumst við vingjarnlega hótelstjóranum Bobby. Hann byrjaði á að bóka fyrir okkur gistingu á góðu verði hjá frænda sinum í Agra, hélt svo áfram og bauð okkur upp á indverska tómatsúpu og toppaði það svo með því að senda kvöldverð til okkar upp á herbergi. Ekki nóg með það heldur kom hótelstjórinn með og mataði okkur öll upp í rúmi hjá Áslaugu og Evu (sjá mynd til sönnunar). Vingjarnlegi hótelstjórinn hætti ekki þar heldur bauð okkur í morgunmat til sín og fjölskyldu sinnar (þ.e. foreldra og systkina) og til að skutla okkur til Agra á bílnum sínum (klukkutíma akstur). Að sjálfsögðu tókum við boði inn á indverskt heimili fagnanadi og ekki verra að aksturinn fylgdi með í kaupbæti. Plön okkar að fá loksins að sofa út fuku út um gluggann því Bobby vildi leggja af stað klukkan 8, okkur tókst þó að seinka því til hálf 9. Morguninn eftir bankaði vingjarnlegi hótelstjórinn eldsnemma og stóð afskaplega óþægilega yfir okkur á dröttuðumst í fötin og pökkuðum. Á meðan fengum við heldur ótrúverðuga sögu um hvernig vegurinn heim til hans hafði skyndilega rifnað í sundur, án þess að dropi hefði komið úr lofti, og því gætum við alls ekki heimsótt fjölskylduna hans. Við kinkuðum þó skilningsrík kolli því mæður okkar hefðu heldur ekki verið ánægðar að fá fjóra útlendinga fyrirvaralaust í morgunmat. Við höfðum ekki séð bíl af þeirri tegund sem hann hafði til umráða áður en Toyota Yaris væri tröllslegur við hliðina á honum. Öll komumst við þó inn á endanum og töskunum svo troðið á eftir. Leiðin lá til beint til Agra með tveimur Hofslaugar-stoppum á leiðinni. Svo töskunum okkar yrði ekki rænt mútuðum við lögreglumanni til að vakta bílinn á meðan við skoðuðum Sikandara Tomb. Við keyptu líka banana og kex á miðri leið. Þar sem Áslaug er sérfræðingurinn okkar indversk-ensku fékk hún framsætið og þann vafasama heiður að mata bílstjórann, að hans beiðni.

Við tékkuðum okkur inn á hótelið í Agra og var Bobby hæst ánægður með herbergið „þeirra“, þá átti hann við herbergi sitt, Áslaugar og Evu. Þá fóru að renna á okkur tvær grímur og hótelstjórinn orðinn full vingjarnlegur, enda um 2ja manna herbergi að ræða. Eftir vandræðalega þögn héldum áfram og skoðuðum Red Fort/Agra Fort ásamt Bobby. Þar fór hann að fara hressilega í taugarnar á okkur með ýmsum tilraunum til að smala okkur eins og kindum. Fljótlega tókum við eftir því að áhugi hans beindist fyrst og fremst að Áslaugu. Vingjarnlegi hótelstjórinn umbreyttist í ástsjúka hótelstjórann. Eftir stutt stopp í einu verslunarmiðstöðinni sem við sáum í ferðinni var Bobby farinn að skipuleggja kvöldið og morgundaginn með okkur. Þá þótti okkur nóg komið og sendum hótelstjórann heim með brotið hjarta.

Blessunarlega birtist hótelstjórinn ekki morguninn eftir og örkuðum við af stað og skoðuðum Taj Mahal. Það var byggt sem grafhýsi fyrir eiginkonu keisara sem var uppi á 17. öld. Taj Mahal er þekktasta kennileiti Indlands og oft lýst sem magnaðasta minnisvarða ástarinnar. Það tók um 20 þúsund manns 20 ár að byggja þetta glæsilega mannvirki. Við mynduðum Taj Mahal í bak og fyrir, bæði í dagsljósi og sólsetri, rétt eins og innfæddir mynduðu okkur í bak og fyrir. Eftir sólsetur lögðum við af stað að útganginum sem er smá spölur. Gerði þá þvílíka rigningu að beljandi fljót mynduðust þar sem áður voru göngustígar. Við leituðum skjóls undir virkisveggnum sem er umhverfis hofið. Fljótlega tóku við þrumur og eldingar, okkur til mikillar gleði.

Daginn eftir gerðum við tilraun til að rölta gegnum bæinn sem gekk ekkert sérlega vel. Bæði vorum við svöng og þreytt og ekki bætti úr skák að Agra búar voru yfirþyrmandi ágengir. Þarna fundum við fyrir því hvað við vorum orðin þreytt á hávaðanum, áreitinu og óþrifnaðinum í Indlandi. Um kvöldið lá leiðin á síðsta áfangastað Indlands, Varanasi.

Við komum 4 tímum of seint til Varanasi því lestin keyrði niður tvo vísunda á leðinni og tók sinn tíma að skafa þá undan lestinni. Þegar kom að því að finna tuktuk-a gripum við þá bílstjóra sem buðu okkur ódýrasta verðið. Það reyndist þó ekki vera gáfulegt múv því þetta varð að einni allsherjar svikamyllu þar sem bílstjórinn fór með okkur á ógeðslega hótel bæjarins og sagði það vera hótelið sem við vildum fara á. Leiðin þangað var eins og úr verstu hryllingsmynd: þröng stræti, rotnandi hundur, feitar beljur sem fylltu út í gangveginn og klassíska indverska skítafýlan fyllti vit okkar. Við áttuðum okkur fljótt á því að við vorum líklega á röngum stað en gátum lítið gert í því þar sem við vissum ekkert hvar við vorum. Bílstjórinn stakk þá á upp á öðru hóteli og þar sem við vorum ekki búin að bóka hitt ákváðum við að  kíkja á það. Það reyndist þó til allrar lukku vera hið ágætasta hótel, með lokuðum garði þar sem við gátum fengið kærkominn frið og ágætan mat.

Í Varanasi fórum við tvær siglingar á Ganges fljótinu sem er heilagt í augum Indverja. Fólk baðar sig í fljótinu, burstar tennurnar, veiðir fisk, þvær þvottinn sinn, drekkur úr því en auk þess dreifir það ösku látinna ástvina í fljótið. Í fyrri siglingunni, sem var við sólarupprás, mátti litlu muna að Áslaug og María ældu í fljótið þegar þær sáu fólk baða sig og bursta tennurnar upp úr því vitandi af öllum viðbjóðnum sem leyndist í fljótinu fyrir neðan þær. Við fljótið eru u.þ.b 80 ghat, en það eru þar til gerðir brennslustaðir þar sem líkin eru brennd. Lík barna undir 10 ára aldri, óléttra kvenna og þeirra sem létust úr sjúkdómum eru þó sett beint í fljótið. Við fylgdumst með einni brennsluathöfn og þótti okkur það mjög merkileg sjón þar sem líkin lágu óhulin á bálkesti þannig að við horfðum framan í þau á meðan þau brunnu.

Án gríns þá er “Viltu vinna milljón” vinsælasti sjónvarpsþáttur Indlands og virðist vera í sjónvarpinu á hverju kvöldi. Oft sáum við alla hótelstarfsmennina spennta fyrir framan imbakassann að fylgjast með.

Á heildina litið erum við mjög ánægð með þessa Indlandsdvöl og hefðum aldrei viljað sleppa því að koma hingað. Hlutir sem við rákum áður upp stór augu yfir í byrjum eru orðnir ósköp eðlilegir. Fátt er orðið sjálfsagðara en ráfandi beljur og flækingshundar á götunum, vöntun á umferðarljósum og fátækt fólk hvert sem litið er. Nú erum við þó tilbúin í næsta ævintýri og bíðum spennt eftir því að sjá hvað mun á daga okkar drífa í Nepal.

Indland – Amritsar

Jæja þá komum við að fyrstu lestarferðinni á Indlandi en við „hlökkuðum“ mikið til hennar. Pöntunarkerfið raðaði okkur vítt og breitt um vagninn þannig ad við deildum klefum með misundarlegum Indverjum. Þar ber helst að nefna manninn sem hraut í rúminu hennar Evu þegar við komum um borð. Þegar honum var beint á að þetta væri alls ekki hans rúm smeygði hann sér einfaldlega upp í „king size“ rúm vinar síns á hæðinni fyrir neðan og hélt áfram að hrjóta þar. Indverjinn sem var í rúminu við hliðina á Maríu var einnig kynlegur kvistur. Reglulega komu menn sem buðu ýmislegt matarkyns til sölu, s.s. omilettu og kaffi en hann verslaði hvern einasta rétt og ropaði hátt og snjallt eftir hverja máltíð. Þegar María vaknaði um morguninn var hann að hugleiða með tilheyrandi öndunaræfingum, hummi og handahreyfingum. Klósettið vakti einnig mikla lukku. Við okkur blöstu lestarteinarnir í gegnum litla holu í gólfinu og hlandsaurþefurinn fyllti vit okkar svo lá við uppköstum og öðrum ófögnuði. María fékk nett taugaáfall þegar hún festist inni á ógeðisklósettinu og var farin að íhuga hvort hún kæmist út um holuna. Eftir þessa hræðilegu lífsreynslu var gott að hafa Evu sálfræðing með í för.

 Pílagrímar og ferðamenn flykkjast til Amritsar til að sjá Gyllta hofið og vorum við þar engin undantekning en við skoðuðum það nokkrum sinnum í ýmiss konar birtu. Gyllta hofið er heilagasti staður Síka og til að komast inn þarf maður að fara úr skónum, thvo faeturnar og hylja hárið. Fólk baðar sig og drekkur heilaga vatnið umhverfis hofið en thad telur ad med thvi muni sal theirra blessast. Við erum nokkuð viss um að ef heilbrigðiseftirlitið á Íslandi kæmist í þettta vatn yrði þessi athöfn bönnuð af heilsufarsástæðum. Við erum sammála um að hofið sé með því fallegasta sem við höfum séð og var friðsældin þar inni kærkomin eftir tryllinginn sem við höfðum upplifað síðustu daga á götum Indlands. Líkt og venjulega vöktum við mikla athygli en það toppaði þó ekkert klikkuðu konuna sem elti okkur eins og skugginn og endaði á því að leggja álög á Steinar og stökkva urrandi á Áslaugu þegar verðirnir ætluðu að halda henni frá okkur. 

Á hverjum degi rétt fyrir sólsetur er athöfn á landamærum Indlands og Pakistans þar sem landamærunum er lokað og fánarnir dregnir af húni. Við lögðum upp í smá ferð og ákvaðum að bera þessa athöfn augum en hún var athyglisverð að ýmsu leiti en fyrst og fremst undarleg. Mikill fjöldi Indverja og Pakistana, handan landamæranna, var þarna samankominn og virtist tryllingslega spenntur fyrir þessu öllu saman, m.a. fyrir því að hlaupa með indverska fánann og sjá dans landamæravarðanna sem líkist „Skóm dauðans“ úr Fóstbræðrum óþægilega mikið. Við fengum VIP sæti í sérstakri útlendingastúku en hún var næst landamærunum sjálfum og skemmtum við okkur konunglega.    Mannlífið í Amritsar var virkilega skemmtilegt og flest allir mjög vinalegir. Við gengum inn í bæinn þar sem ferðamenn voru hvergi sjáanlegir og römbuðum m.a. á skrúðgöngu leidda af skreyttum fíl og honum fylgdu bleikspreyjaðir karlmenn. Fljótt á litið virtist þetta vera gay-pride ganga en eftir að hafa rætt við innfædda komumst við að því að hún væri af trúarlegum toga eins og við var að búast.  

            Eini mínusinn við Amritsar var frekar ósmekklegt hostel. Það leit ágætlega út við fyrstu sýn og byrjuðum við að þvo öll fötin okkar og hengja þau á þvottasnúrur þvers og kruss um herbergin. Við vorum þó ekki lengi í paradís því fljótlega blossaði fúkkalyktin upp og við tókum eftir myglu á veggjunum. Nú lykta fötin okkar eins.

 Eftir skemmtilega dvöl í Amritsar beið okkur önnur næturlest til Mathura sem er borg nálægt Agra.

Að lokum viljum við koma því á framfæri að Áslaug hefur hlotið nýtt nafn, en það mun vera Hofslaug. Tímabundin sjúkdómsgreining er hofsýki á háu stigi og íhugum við að senda hana í meðferð á Hofsósi strax við heimkomu.